Hjálpum þeim

Á aðventunni er fallegt að minnast þeirra sem minnst mega sín. Og þar geta þingmenn VG sannarlega verið stoltir af snemmbúnum afrekum sínum. Þeim tókst með harðfylgi að berja í gegn lækkun á greiðslum í sameiginlega sjóði þjóðarinnar fyrir skjólstæðinga sína.

Enginn efast um að í VG er kærleiksríkt fólk sem réttir þeim hjálparhönd sem harðast hafa orðið úti. Það er yfirlýst markmið hreyfingarinnar að færa tekjur í samfélaginu frá breiðu bökunum til smælingjanna og beita til þess fjárlögum.

Formaður VG hóf samtalið við þegnana eins og lenska er í hennar hópi. Að vísu ekki við stjórnarandstöðuna, ekki fiskverkafólk sem hefur misst sína vinnu, ekki öryrkja og alls ekki almenning. Skiljanlega gat VG ekki talað við neina nema sína minnstu bræður.

Nei, eins og búast mátti við af þeim sem áður kenndu sig við alþýðuna var ákveðið að smætta vandann með því að einbeita sér að brýnasta máli samfélagsins, erfiðleikum útgerðarmanna. Allir sanngjarnir menn sjá hve mjög þrengir að þeim hópi. Nú síðast þarf útgerðin að glíma við lægra olíuverð og veikari krónu. Útgerðarfjölskyldur í sárri neyð neyðast til þess að selja frá sér kvótann (eða láta frá sér hlutabréf eins og sumir segja) og aðeins örfáar hetjur hafsins þreyja enn þorrann.

Stórútgerðirnar hafa hver á fætur annarri þurft að endurnýja úreltan flota. Við það lækkaði verulega í bankabókum margra. Engir skilja eins vel og þingmenn VG örvæntinguna sem fólk fyllist þegar bankainnistæðan er komin niður í níu stafa tölu.

Fórnfýsi þeirra sem taka að sér að yrkja fiskimiðin, sameign þjóðarinnar, fyrir okkur hin hefur ekki verið metin að verðleikum fyrr en nú, þegar Vinstri hreyfingin – grænt framboð færir útgerðinni örlítinn þakklætisvott.

Markaðurinn er afar hættulegt tæki eins og þingmenn VG og félagarnir í systurflokkunum í ríkisstjórninni vita. Því er mikilsvert að vernda útgerðina fyrir honum. Hann leiðir til hagvaxtar, en forsætisráðherra boðar þá stefnu að hagvöxtur sé liðinn undir lok og ríkisstjórnin hugsar eftir öðrum leiðum: Út frá hagsæld.

Það er að segja: Héðan í frá ætla þingmenn VG að vera góðir við þurfalinga. Hagsæld útgerðarmanna er þingmönnum flokksins efst í huga og eðlilegt að ausa af kærleikssjóði þjóðarinnar til þeirra.

Sem ábyrgur ríkisstjórnarflokkur veit VG að ekki er hægt að gera allt fyrir alla. Einhvers staðar verður að skera niður á móti. Flokkurinn þurfti ekki að leita lengi þangað til hann fann aflögufæran hóp: Öryrkja.

Svo vel vill til að þessi ríkisstjórn hinna lakast settu gat sótt til öryrkja nokkra milljarða króna í fjárlagafrumvarpinu. Þannig munu öryrkjar fyrir milligöngu VG og systurflokkanna stoltir hjálpa útgerðarmönnum að brjótast frá örbirgð til auðlegðar um þessi jól.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.