1917: Tvær rússneskar byltingar — frá keisara til kommúnisma

Í þessari grein rek ég hvernig íslensk blöð sáu atburðina í Rússlandi árið 1917 fyrir sér. Hér eru samtímaheimildir að fjalla um það hvernig atburðarásin varð. Sumt vitum við nú að er rangt, en markmiðið er að horfa á atburðina eins og þeir komu Íslendingum fyrir sjónir þegar þeir gerðust. Í upphafi árs var enginn að velta því fyrir sér að Bolsjivekar eða Maximalistar, eins og þeir voru kallaðir þá, myndu taka völdin í Rússlandi. Enginn nefndi þá kommúnista meðan þeir undirbjuggu valdarán eða byltingu. Í árslok veit enginn hvernig fer, nema það eitt er víst að „Það er óhugsandi að þeir geti haldið völdunum.“

Keisarinn fellur

Rússar börðust með bandamönnum, það er Bretum og Frökkum, gegn Þjóðverjum. Í janúar vitnar Vísir í viðtal við bandaríska hugvitsmanninn Edison sem segir: „Dagar einveldisstjórnanna eru taldir. Eg hygg að núverandi stjórnarfyrirkomulag haldist aðeins í þrem ríkjum Norðurálfunnar: Bretlandi, Frakklandi og Sviss. Dauðateygjur einveldisstjórnanna verða ef til vill harðar og langar, en þær hverfa úr sögunni áður langt um líður. — Þjóðir heimsins vilja ráða sér sjálfar, og það sem þjóðirnar vilja, verður að lokum ofan á.“

Kerenskí var forsætisráðherra fram að byltingu Leníns.

Kerenskí var forsætisráðherra fram að byltingu Leníns.

Febrúarbyltingin svonefnda var í mars árið 1917 samkvæmt vestrænu tímatali. Fregnir bárust ekki jafnhratt milli landa og nú á dögum, en 17. mars sagði Morgunblaðið í stuttu símskeyti að Rússakeisari hefði lagt niður völd og væri fangi þingsins. Þremur dögum síðar var blaðið farið að velta fyrir sér hvað þetta þýddi. Þar var talað um „nýja frjálslynda stjórn“ og framtíðin virtist björt. Byltingin gæti jafnvel haft í för með sér „risavaxnari þroska Austur-Evrópu á næstu árum en nokkurn hefði dreymt um“.

Georgí Lvov stýrði bráðabirgðastjórninni eftir marsbyltinguna, en Kerenskí tók við sem forsætisráðherra í júlí. Rússar voru enn í stríði við Þjóðverja, en vegnaði ekki vel. Hermenn voru illa búnir og undu sínu hlutskipti illa.

Keisaranum var steypt af stóli vorið 1917 við fögnuð.

Byltingin vakti ekki ugg í fyrstu fréttum sem bárust til Íslands. Í stað keisarans virtist vera komin frjálslynd stjórn sem hélt áfram stríðinu gegn Þjóðverjum. En sumarið varð Rússum erfitt. Herinn hörfaði, aginn minnkaði og ríkisstjórnin átti sífellt erfiðara með að halda stjórn á landinu.

Í ágúst birtist svo fyrst í Vísi frétt um náunga sem átti eftir að setja mark sitt á heimssöguna.

Lenín kemur fram á sjónarsviðið

Lenín kemur til sögunnar í íslenskum blöðum í frétt Vísis 20. ágúst um upplausn í her Rússa. Þar segir að „ábyrgðarlausir gasprarar, sem gerst hafi verkfæri í höndum Þjóðverja“ hafi róið undir óeirðum og valdið því að hermenn neituðu að gera skyldu sína og hefðu þannig gert Þjóðverjum mögulegt að rjúfa fylkingar Rússa.

Og hverjir skyldu þessir gasprarar hafa verið?

„Menn þeir sem hér er átt við eru hinir svonefndu maximalistar og þá aðallega Lenín, sá sem kom yfir þvert Þýskaland frá Sviss til Rússlands eftir stjórnarbyltinguna og nánustu fylgismenn hans.“

Lenín og félagar hans eru sagðir ákærðir fyrir „landráð og uppreisn“ og talið sannað að þeir hafi verið „í bandalagi við erindreka Þjóðverja og ásamt þeim unnið að því að eyðileggja agann í hernum og koma af stað óeirðum í landinu“. Til þess hafi þeir notað fé frá Þjóðverjum. Þeir séu enn fremur kærðir fyrir manndráp og önnur ofbeldisverk.

Ekki fer milli mála samkvæmt fréttinni hverra erinda þessir „maximalistar“ ganga:

„Við rannsókn máls þessa hefur komið í ljós að Þjóðverjar hafa sæg af njósnurum í Rússlandi. Og því er haldið fram að Lenín hafi frá upphafi verið erindreki Þjóðverja og hafi verið sendur til Rússlands til að vinna að því að Þjóðverjar gætu unnið sigur á Rússum.“

„Hann heitir ekki Lenin“

Aðeins rúmri viku síðar helgar Morgunblaðið þessum „erindreka Þjóðverja“ heilsíðu. Gefum blaðinu orðið:

„Hann heitir ekki Lenin þótt hann gangi undir því nafni. Hann er rússneskur aðalsmaður, fæddur í Jaroslav og heitir Ulianoff. Hann las lögfræði en gaf sig snemma við stjórnmálum og vísindum.

Lenin er meðalmaður á hæð, bláeygur, hárið brúnleitt, en er nú að byrja að grána. Það kveður eigi mikið að honum í sjón, en þegar maður fer að tala við hann, verður maður þess skjótt var, að hann er einbeittur og áræðinn maður, sem ekki lætur sér neitt fyrir brjósti brenna. Hann er ofstækismaður, stælinn og mælskur vel.“

Ræður hans verða að umræðuefni. Þær virðist við fyrstu sýn „vel samdar, reiprennandi og röksemdalíkar“, en þegar þær séu lesnar betur reynist þær „mestmegnis mælgi“. Lenín tali við menn „líkt og kennari við börn“ og endurtaki sömu setningarnar þar til allir eigi að hafa skilið.

Ferð hans yfir Þýskaland er aftur höfð til marks um hvers konar maður sé hér á ferðinni:

„Þjóðverjar vissu vel hvað þeir gerðu þá er þeir leyfðu Lenin og félögum hans að fara yfir Þýzkaland til Rússlands. Þeir vissu að hann mundi fljótt auka ókyrrðina í Rússlandi.“

Lenín hafi varla verið kominn til Petrograd þegar hann hóf „grimmilega árás á stjórnina“. Hann stofnaði Pravda og krafðist þess „að ófriðnum yrði þegar hætt og eignum auðkýfinganna skift á meðal fátæklinga“. Hermenn voru hvattir til að leggja niður vopn og fara heim, verkamenn til að taka verksmiðjurnar og verslunarþjónar til að reka húsbændur sína burt og taka sjálfir við verslununum.

„Svo hófst yfirgangurinn.“

Lenín vissi meira að segja, samkvæmt blaðinu, hvar ætti að bera niður næst. „Leninsflokkurinn kvaddi allar þvottastúlkur í borginni á fund“ og þær skyldu skora á menn sína, bræður, unnusta og vini að hlaupa undan hermerkjum og koma heim.

En allt hafði þetta endað illa fyrir Lenín í júlí. Kerenskí næði nú „æ fastari tökum á þjóðinni, en áhrif Lenins fóru þverrandi“. Lenín hefði komist undan og flúið, sagði sagan.

Morgunblaðið var þó ekki alveg tilbúið að afskrifa hann:

„En það er þó langt frá því að áhrifum Lenins sé lokið enn. Flokkur hans er ennþá öflugur og getur orðið stjórninni hættulegur, því að nú mun hann þykjast eiga að hefna sín á henni.“

Uppreisnin í júlí

Þann 30. ágúst birti Morgunblaðið frásögn af uppreisn bolsévika í Petrograd í júlí. Þar segir að sjóliðar frá Kronstadt og bolsévikar hafi gengið um göturnar undir rauðum fánum þar sem á stóð: „Niður með stjórnina! Niður með auðkýfingana! Hermannaráðið á að hafa völdin!“

Barist hafi verið á götum borgarinnar og mannfall orðið mikið. Uppreisnarmenn höfðu fylkt sér um flokk Leníns og hrópað „Fyrir Lenin“ og „Fyrir hið nýja Rússland“. Lenín sjálfur sást hvergi. „Menn segja að hann hafi flúið.“

Samt fylgir fyrirvari í lok fréttarinnar: „Ný uppreist getur blossað upp aftur þegar minst varir.“

Sá spádómur rættist.

Lenín hverfur ekki

Næst verður vart við Lenín í Vísi 20. október. Þar er fjallað um uppreisn Korniloffs hershöfðingja gegn Kerenskí og ástand rússneska hersins. Tilraunir Kerenskís til að koma aftur á heraga með „stáli og blóði“ hafi lítinn árangur borið og „Lenin og Maximalistar fara sínu fram og ala á sundrungu og óeirðum í landinu og á vígvellinum“.

Tveimur vikum síðar er enn fátt í íslensku blöðunum sem bendir til þess að Lenín sé við það að taka völdin. Vísir birtir 5. nóvember jákvæða frétt frá Rússlandi, fjarri byltingarhugmyndum. Nú var skrifað um jákvæð áhrif áfengisbannsins á rússneska bændur. Þar segir að bændur sem áður hafi eytt frístundum sínum við drykk lesi nú dagblöð, læri að lesa og stofni bókasöfn. „Víða hvar hafa alþýðubókasöfn verið sett á stofn, þar sem einokunarvínsölukráin var áður.“ Samvinnufélög séu að myndast og heimilislífið hafi batnað.

En hlutirnir gerðust hratt. Tveimur dögum síðar bárust nýjar fréttir sem áttu eftir að enduróma lengi.

Valdatakan í Petrograd

Þann 7. nóvember berst Vísi skeyti: „Alvarlegar skærur milli rússnesku stjórnarinnar og Maximalista. Stjórnarherinn hefir Petrograd á valdi sínu.“

Daginn eftir er staðan allt önnur:

„Petrograd er nú á valdi hermanna-verkamannaráðsins.“

Bráðabirgðastjórnin er farin frá völdum, ráðherrar hafa verið handteknir og „Lenin ræður þar lögum og lofum“. Maximalistar krefjast friðar tafarlaust.

Morgunblaðið birti 9. nóvember frétt undir fyrirsögninni „Borgarastyrjöld yfirvofandi í Petrograd“ og segir að stjórnin ætli „að þröngva »maximalistum« til þess að halda sér í skefjum“.

Daginn eftir hefur myndin enn breyst. Fyrirsögnin er „Lenin einvaldur“. Framkvæmdanefnd hermanna- og verkamannaráðsins hafi krafist yfirráða í Petrograd og bannað hermönnum að hlýða herstjórninni. Bráðabirgðastjórnin hafi reynt að fá nefndina til að draga kröfur sínar til baka „og hafði í hótunum, en alt kom fyrir ekki“.

Síðan hafi „Maximalistar“ náð „ritsímunum, talsímunum, fréttastofum, bönkum og öðrum stofnunum algerlega á sitt vald“. Setuliðið fylgi þeim og „stjórnarbyltingin er fullkomin“. Ráðherrarnir eru í varðhaldi.

„Lenin ræður lögum og lofum í Rússlandi.“

Stefnuskráin fylgir með: „að friður sé saminn þegar í stað. Rússar eru fúsir til þess að láta lönd af höndum.“

Sigraður, handtekinn — eða enn við völd?

Þann 15. nóvember flytur Vísir þau tíðindi að Kerenskí, Korniloff og Kaledin hafi myndað þrímenningsstjórn. „Her þeirra hefir gersigrað her Lenins í Petrograd í blóðugum orustum. Haldið að Lenin sjálfur hafi verið tekinn höndum.“

Blaðið setur þó fyrirvara strax í upphafi: „Fregnirnar frá Rússum eru ef til vill ekki sem ábyggilegastar.“

Maximalistar virðist hafa haft lítið fylgi utan Petrograd og treyst um of á stuðning hersins. Kerenskí og Korniloff hafi aftur á móti getað dregið saman herlið og séu að sögn komnir til Petrograd. Ef þeim takist að bæla uppreisnina megi búast við miklum breytingum.

Lenín og Trotskí.

„Og hver veit nema þeir verði búnir í alt aftur með vorinu.“

Sama dag berast þó fregnir sem ganga í öfuga átt. Maximalistar segjast hafa „unnið fullnaðarsigur í Rússlandi“. Og nú kemur annað nafn inn í fréttirnar:

„Trotsky er utanríkisráðherra Maximalista.“

Trotskí fær enga sérstaka kynningu. Hann birtist einfaldlega sem ráðherra stjórnarinnar sem fyrir örfáum dögum hafði tekið Petrograd.

Kerenskí og Lenín orðnir sáttir?

Fréttin um sigur Kerenskís og handtöku Leníns entist ekki lengi. Fimm dögum síðar, 20. nóvember, segir Morgunblaðið að Maximalistar hafi tekið Czarkoje Selo. Síðan kemur enn furðulegri fregn:

„Lausafregnir herma það, að Kerensky og Lenin séu nú sáttir og að samvinna verði framvegis þeirra á milli.“

Myndin er sannarlega ekki ljós. Fyrst hafði Lenín tekið Petrograd. Síðan átti her hans að hafa verið gersigraður og hann sjálfur tekinn höndum. Nú áttu hann og Kerenskí jafnvel að vera orðnir samherjar.

Trotskí og friðurinn

Undir lok mánaðarins fer þó að koma skýrari mynd á stöðu og stefnu nýju valdhafanna. Austri birtir 1. desember skeyti frá Reykjavík, dagsett 25. nóvember, þar sem segir að „Maximalistar hyggjast að skifta Rússlandi í mörg ríki með lýðveldisstjórn og Lenin verði forseti sambandsráðsins“.

Friður við Þýskaland er jafnframt orðinn forgangsmál. Rússneski yfirhershöfðinginn Dukhanin neitar að hlýða skipun stjórnar Maximalista um að bjóða Þjóðverjum vopnahlé. Hann er „hneptur í varðhald fyrir að vilja ekki semja um vopnahlé við Þjóðverja“. Maximalistar skora á hersveitirnar að halda samningum við óvininn áfram.

Og aftur kemur Trotskí við sögu: „Trotsky utanrikismálaráðherra ætlar að birta leyniskjöl bandamanna.“ Bandamenn neita á sama tíma „að viðurkenna nokkra stjórn í Rússlandi, sem skipuð sé Maximalistum“.

Ekkert er enn öruggt. „Maximalistar kváðu vera valtir í sessi. Kadettaflokkurinn [frjálslyndi stjórnarskrárflokkurinn] neitar að leggja þeim lið.“

Þannig líður nóvember. Lenín hefur tekið völdin, misst þau samkvæmt einni fregn, verið tekinn höndum samkvæmt annarri og sæst við Kerenskí samkvæmt þeirri þriðju. Trotskí er orðinn utanríkisráðherra og nýja stjórnin reynir að koma á vopnahléi við Þjóðverja, en enn berast fregnir um að Maximalistar standi höllum fæti.

Svona breyttist allt. Herinn hætti að vernda spillta yfirstétt og fór að berjast fyrir alþýðuna.

Desember: „Brauð og friður“

Í desember er enn óljóst hvað hefur eiginlega gerst í Rússlandi. Morgunblaðið segir 8. desember: „Nú eru fréttirnar að vísu svo strjálar, óáreiðanlegar og gagnstæðar að það eru vandræði að skilja hvað í Rússlandi er að gerast.“

Greinin beinir sjónum að því sem geti ráðið úrslitum um framtíð Leníns: „Brauð og frið heimtar lýðurinn í Petrograd.“ Ef honum takist ekki að útvega mat „þá mun ólgusjór stjórnarbyltingarinnar skjótt gleypa hann“. En matvæli berast til borgarinnar og niðurstaðan verður því: „Lenin virðist eigi mjög valtur í sessi.“

Þann 14. desember berast þó fregnir um að „Maxímalistar hafa orðið í minni hluta við kosningarnar á Rússlandi“ og að Kerenskí sé aftur kominn fram. Jafnframt er sagt að Lenín hyggist lýsa allar lántökur Rússlands ógildar. Friðarmálin eru líka komin í forgrunn og Trotskí kemur fram fyrir hönd nýju stjórnarinnar.

Á aðfangadag lítur Morgunblaðið yfir atburði ársins. Blaðið telur að friðarkrafa Bolsjivika og loforðið um land hafi ráðið miklu um vaxandi fylgi þeirra. Trotskí er látinn flytja boðskapinn skýrt: „Heiðarlegan, alþýðlegan frið undir eins. Ráðin eiga að fá öll völd í hendur, en alþýðan alla jörðina.“

Blaðið viðurkennir að þetta hafi fallið í góðan jarðveg. Bolsjivikarnir hafi „fengið vind í seglin“ og dregið „saman net sitt með hægð og gætni“. En um framtíð þeirra er Morgunblaðið sannfært:

„Það er óhugsandi að þeir geti haldið völdunum.“ Í lok árs 1917 var því ekki aðalspurningin hvort Lenín hefði tekið völdin heldur hversu fljótt hann myndi missa þau.

Engum virðist hafa dottið í hug að veldi „Maximalista“ myndi endast í þrjá aldarfjórðunga, hvað þá að meira en 100 árum seinna væri nýr einræðisherra tekinn við völdum í Rússlandi eftir stutta tilraun til lýðræðis.

Færðu inn athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.