Eru elskendur guð? Um íslenska Nóbelsverðlaunahafann og ástina

Í hvert skipti sem nýr Nóbelsverðlaunahafi er tilkynntur verð ég svolítið spenntur. Skyldi ég þekkja þann sem hlaut hnossið? Frá 2016 er listinn svona:

2026: Anne Carson (Kanada / Ísland)
2025: László Krasznahorkai (Ungverjaland)
2024: Han Kang (Suður-Kórea)
2023: Jon Fosse (Noregur)
2022: Annie Ernaux (Frakkland)
2021: Abdulrazak Gurnah (Tansanía / Bretland)
2020: Louise Glück (Bandaríkin)
2019: Peter Handke (Austurríki)
2018: Olga Tokarczuk (Pólland)
2017: Kazuo Ishiguro (Bretland)
2016: Bob Dylan (Bandaríkin)

Hverja þekki ég? Dylan var hlægileg tilraun gamalla bókmenntafræðimanna til þess að sýnast fylgjast með dægurmenningunni – með því að verðlauna úrillt gamalmenni sem var á toppnum áður en ég varð táningur. En að minnsta kosti þekkti ég hann.

Ishiguro samdi Dreggjar dagsins, frábæra bók. Líka nokkrar fleiri góðar og svo Never Let Me Go sem var mér ekki að skapi og Kristín frænka henti. Sumum finnst hún dásamleg. En hann átti verðlaunin skilið.

Olga Tokarczuk er ágætur rithöfundur. Ég hef lesið tvær bækur hennar eftir að hún fékk Nóbelinn. Annars hefði ég líklega aldrei heyrt hennar getið.

Næstu tvo hef ég aldrei heyrt um.

Annie Ernaux hefur verið þýdd á íslensku og ég hafði reyndar nýlega lesið þýðingu Rutar Ingólfsdóttur á Staðnum þegar Annie fékk verðlaunin. Síðan hef ég lesið tvær eða þrjár bækur höfundarins. Þær eru ekki skemmtilegar, en allt í lagi að lesa þær.

Jon Fosse skrifaði leiðinlegustu bækur sem ég hef lesið, en kannski venst hann. „Leiður verður ljúfur …“ Nei, það var víst öfugt. Og þó: „Svo má illu venjast …“.

Næstu tvö árin þekki ég ekki höfundana.

Ég heyrði Anne Carson fyrst getið á miðvikudaginn í síðustu viku. Það vakti áhuga minn að hún býr á Íslandi. Daginn eftir fékk hún Nóbelinn. Ég fékk áhuga á henni og náði mér í Eros the Bittersweet á Storytel. Það er ekki skáldsaga heldur fræðileg greining á ástarþrá, ekki síst eins og hún kemur fyrir í fornbókmenntum Grikkja.

Eiginlega væri synd að segja að þetta sé skemmtileg bók. Fræðileg umfjöllun um erótík er það sjaldnast.  Hún fær samt 4,4 af 5 á Goodreads-vefnum sem er býsna hátt. Ég hugsa að bókin hitti í mark hjá ungu fólki sem er annað hvort ástfangið eða í ástarsorg. Meginviðfangsefnið er nefnilega löngun eða þrá en ekki langtíma ást.

Carson segir einmitt að við þráum það mest sem við ekki höfum. Þegar við eignumst það verður það ekki eins spennandi lengur og þráin snýst jafnvel í andhverfu sína. Ég leyfi mér að efast um þessa kenningu.

Carson vitnar í Platón, Sókrates, Hómer, Aristófanes og Saffó. Ýmsa fleiri, en þessum man ég eftir. Nokkur af dæmum hennar snúast um drengjagirnd, það er löngun fullorðinna karlmanna í unga drengi, sem var talið eðlilegt í Grikklandi hinu forna, en fellur ekki vel í kramið hjá mér að minnsta kosti.

En þótt efnið sé ekkert sérstaklega áhugavert er stíllinn ágætur og ég kláraði bókina. Sumt fannst mér samt íhugunar virði.

Ef elskendur væru spurðir hvort þeir vildu verða eitt í bókstaflegri merkingu, er líklegt að tvær grímur myndu renna á jafnvel þá sem heitast elskast. Þrátt fyrir allt vill jafnvel fólk í ástarbríma lifa sínu lífi með öðrum, en ekki samvaxið öðrum.

Gríska orðið glukupikron, sætt og beiskt, er í lykilhlutverki. Ástin getur verið ljúfsár, bittersweet. Samsvörun ástarinnar við ritlist er líka ofar mínum skilningi. Þó skildi ég það þegar Carson líkir ástinni við lestur góðrar bókar sem maður veit að endar, en vonar að endist sem lengst. Nóvella væri þá skyndikynni, en það er eflaust útúrsnúningur.

Hún segir líka að við þráum þekkingu á svipaðan hátt og við þráum aðra manneskju. Við viljum skilja eitthvað sem við skiljum ekki enn. Jú, það er skemmtileg hugmynd.

Samkvæmt Carson telja þeir sem eru ástfangnir sig vera alvitra, eins konar guð. Kannski tengist það einhverju hormóni, en ástarþrá setur örugglega af stað hugvíkkandi efni.

Nokkrar tilvitnanir:

All lovers believe they are inventing love.

When I desire you a part of me is gone.

When you are falling in love it is always already too late.

The words we read and words we write never say exactly what we mean. The people we love are never just as we desire them.

To be running breathlessly, but not yet arrived, is itself delightful, a suspended moment of living hope.

How is it that when you fall in love you feel as if suddenly you are seeing the world as it really is?

Þótt Eros the Bittersweet sé ekki akkúrat þær bókmenntir sem ég sækist eftir þá ákvað ég að taka hana alvarlega, sökkva mér ofan í hana og reyna að skilja hvert höfundurinn er að fara. Ég er jafnvel til í að lesa aðra bók eftir Carson. Mér skilst að hennar verk séu fleiri á slóðum Hómers og drengjaþrá komi þar fyrir, en vel skrifuð. Hún er greinilega mikill rithöfundur, en skrifa góðir rithöfundar alltaf góðar bækur?

Gef henni séns.

Þegar Nóbelsnefndin hringdi í Carson sagðist hún vera að hlusta á vindinn á Íslandi. Sagði ekki Dylan einmitt: The answer, my friend, is blowing in the wind ?

Færðu inn athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.