Um daginn lét ég þess getið í pistli að ég væri giftur opinberum starfsmanni. Ég gerði ekki ráð fyrir að þessi uppljóstrun myndi draga dilk á eftir sér. En það er vandlifað.
Skömmu síðar talaði ég við Reyni föðurbróður minn í síma. Þegar við höfðum rætt landsins gagn og nauðsynjar hæfilega lengi sagði hann mér að Jóhann sonur sinn hefði ekki verið ánægður með pistil frá mér um daginn.
„Nú“ sagði ég heldur fýlulega, því að mér líkar það ekki ef menn eru ósáttir við það sem ég skrifa.
Reynir hefur greinilega heyrt tóninn því að hann flýtti sér að bæta við: „Ja, kannski ekki ósáttur við pistilinn sjálfan heldur það að þú værir giftur opinberum starfsmanni.“
Ég róaðist strax aðeins því að ég hugsaði með mér að kannski væri þetta ábending um þrískiptingu valdsins og að starfsmenn Alþingis væru ekki opinberir starfsmenn í einhverjum skilningi.
Eða honum fyndist orðalagið „opinber starfsmaður“ ekki geta átt við konu. Það fannst mér að vísu ólíklegt því að ég held að ótti femínista við liti eins og bleikt og blátt eða heiti eins og ráðherra sé ekki útbreiddur á landsbyggðinni.
„Nei, hann átti ekki við það,“ sagði Reynir. „Hann var ekki kátur með að þú værir giftur Vigdísi.“
Nú leist mér ekki á það. Ef þeir feðgar ætluðu að leiðbeina mér um kvonfang var þetta orðið býsna seint. Ég sleit samtalinu og hringdi í Jóhann. Hann þóttist glaður að heyra í mér, en af því að mér var mikið niðri fyrir snéri ég mér beint að efninu.
„Pabbi þinn sagði mér að þú værir ekki ánægður með að ég væri giftur Vigdísi.“
Það varð pínleg þögn. Eftir drykklanga stund svaraði Jóhann:
„Hann hefur ekki farið alveg rétt með. Það sem ég var að setja út á var að þú værir yfirhöfuð giftur.“
Ekki skánaði það. Hvaða umhyggja fyrir mínum hjúskaparmálum var skyndilega komin upp?
„Ég hef talið að ég væri bara býsna vel giftur.“
Jóhann heyrði að mér var heitt í hamsi þannig að hann hugsaði sig vel um áður en hann tók næst til máls:
„Þetta er ekki bara mín skoðun. Kennarinn minn í barnaskólanum hér fyrir austan innrætti okkur þetta.“
Bíddu nú við, minn kæri, hugsaði ég. Hvað kom barnakennaranum austur á Norðfirði það við hvort ég giftist eða ekki? Að vísu vissi ég að þarna kenndi býsna merkilegur maður sem hét Sigdór Brekkan. Pabbi segir sögu af honum í æviminningum sínum:
„Sigdór kenndi okkur heilsufræði m.a. um mataræði og lagði áherslu á það að grænmeti væri hollara heldur en kjöt. Það var á þeim árum sem þessi kenning var að breiðast út um landið og sagði hann okkur að þeir sem borðuðu aðallega grænmeti væru í góðu jafnvægi og liði vel, en þeir sem borðuðu kjöt væru reiðigjarnir og uppstökkir. Sigdór sjálfur var ekki mikið í jafnvægi því að hann átti það til að stökkva upp á nef sér og reiðast. Hann var órólegastur allra kennaranna hvað þetta snerti. Við fundum fyrir því ef eitthvað ábjátaði.
Einu sinni var það í söngtíma að Sigdór var venju fremur óánægður með okkur og las mikinn reiðilestur yfir okkur. Honum var mikið niðri fyrir. Þá gat ég ekki setið á mér að hvísla að þeim sem stóð við hliðina á mér að nú hefði Sigdór borðað kjöt í dag. Sigdór heyrði þetta og honum var ekki runnin reiðin svo að hann lét mig fara út. Það var látið nægja fyrir þessa yfirsjón.“
Sigdór var afburðakennari eins og ráða má af frásögn Vilborgar Dagbjartsdóttur í bókinni Mynd af konu:
„Þegar ég var unglingur á Norðfirði var í ég barnastúkunni Vorperlunni númer sextíu og fjögur. Sigdór Brekkan var með barnastúkuna og kenndi okkur reyndar líka. Hann var nokkuð hljóðvilltur, sagðist heita Segdór en ekki Segdór, og okkur þótti ákaflega vænt um hann. Hann kenndi okkur góðar stafsetningarreglur, til dæmis þessa og ég hef aldrei villst á henni: Að sker sem skip stranda á hafa e með gati, en skyr sem maður borðar með rjóma er með ypsiloni.“
Á þeim árum sem Jóhann var í tímum hjá Segdóri var ég býsna ungur og hugur minn lítt farinn að hneigjast til kvenna almennt, hvað þá Vigdísar sérstaklega. Mér þótti reyndar ósköp vænt um ömmur mínar enda voru þær skynsamar og góðar við mig, en ég hafði ekki sérstakan áhuga á að giftast þeim.
Steinunn amma mín spurði reyndar einhvern tíma hvernig það væri með Viggu kærustunu hans Bensa, héti hún nokkuð Vilborg. „Nei, hún heitir Vigdís,“ var svarið. „Það var gott,“ sagði amma, „því að það eru allar Vilborgir kommúnistar.“ Þar með gaf hún grænt ljós.
Meðan ég var að hugsa allt þetta segir Jóhann: „Heyrðu, hann átti ekki við þig sérstaklega heldur almennt að karlar kvæntust konum og konur giftust körlum.“
Þetta hafði ég heyrt áður. Að kvænast og kvongast þýðir að festa sér konu. Að giftast er skylt að gefast. Hér áður fyrr gátu konur ekki kvongast þó að nú á dögum þyki það ekki tiltökumál. Ég er hins vegar alls ekki á því að samþykkja að karla geti ekki gifst konum.
Mér finnst ég alveg jafnmikið „gefinn“ Vigdísi og hún mér. Stundum þegar þannig liggur á okkur segi ég si svona við hana: „Mitt er þitt,“ og hún svarar að bragði: „Og þitt er mitt.“
Svona hefur þetta gengið í hátt á fjórða áratug.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sett er út á það að ég sé giftur. Meðan ég kenndi stærðfræði varð mér einhvern tíma á orði á kennarastofunni að ég væri giftur. Gellur þá í samkennara mínum, hressilegri konu sem hvorki var gift né kvænt: „Er Vigdís kannski kvænt þér?“
Þetta þvaður í barnakennurum hefur haft mikil áhrif. Það er ekki fyrsti kjáninn í kennarastétt leikskólakennarinn sem hélt að ljóðlínan „Upp á stól stendur mín kanna“ ætti að vera: „Upp á stól stend ég og kanna.“
Svo vitnað sé í bókmenntirnar þá þekkja flestir línuna:
„Ekki á hann Grímur gott að gifta sig í þessu.“
Ekki er nú sérlega dýrt kveðið en dettur nokkrum í hug að vísan yrði betri ef sagt yrði:
„Ekki á hann Grímur gott að kvænast í þessu“?
Menn þurfa samt ekki að trúa mér í þessu máli. Bjarni Einarsson skrifaði um málið í Skírni árið 1974 greinina Málvöndun og fyrnska, kvongaður – giftur. Um Bjarna sjötugan var sagt: „Bjarni Einarsson, dr. philos. er virtur fræðimaður á sviði íslenskra fornbókmennta.“ Hér er því ekki vitnað í neinn bögubósa.
Í fyrrnefndri grein rekur Bjarni það hvernig orðin að kvænast (kvongast) og giftast hafa verið notuð í íslensku. Hér stikla ég á stóru í niðurstöðum hans.
Um þessi orðasambönd og notkun þeirra í nútímamáli segir Bjarni: „Hér er um að ræða dæmi um fyrningu máls rétt einu sinni, – fyrning sem ekki aðeins orkar tvímælis sökum þess að hún virðist þarflítil, jafnvel óeðlileg, heldur er að nokkru leyti röng miðað við beztu fyrirmyndir fornmálsins.“
Í upphafi víkur Bjarni að merkingunni sem reyndar er augljós, þ.e. að þegar menn kvæntust voru þeir að fá sér kvæn, eða konu. Þess vegna er óeðlilegt að segja að maður kvongist eða kvænist konu. Það er einfaldlega nóg að menn kvænist.
Í fornsögum er hvergi til orðasambandið að kvænast konu að sögn Bjarna. Ef sagt var að einhver hafði kvænst var ævinlega bætt við einhverju á þessa leið: „og fékk þeirrar konu er hét N.N.“
Í Egils sögu er 45 sinnum talað um hjúskap. Þar af er 21 sinni sagt átti, 11 sinnum fekk, einu sinni keypti, öðru sinni gjörði brúðlaup til, fjórum sinnum er manni gipt kona, þrisvar með öðru orðalagi og loks fjórum sinnum sagt að menn kvongist. Í Laxdælu kvongast menn átta sinnum af 34 hjúskapartilvikum og í Njálu kvongast menn fimm sinnum alls.
Á 13. öld er talað um að púsa í merkingunni að ganga að eiga konu. Þetta er komið úr frönskum riddarasögum (espouser). Enn talar fólk um að láta pússa sig saman og hafa líklega glatað upprunanum.
Á sömu öld er líka talað um að karla giftist og elsta dæmið sem Bjarni telur að sé hægt að tímasetja með vissu er úr Trístrams sögu og Ísöndar sem þýdd var af bróður Róbert árið 1226 fyrir Hákon konung.
Af merkismönnum sem töluðu um að karlar giftust nefnir Bjarni eftirtalda: Odd Gottskálksson, sem fyrstu þýddi Nýja testamentið á íslensku, Guðbrand biskup Þorláksson, (báðir forðuðust að menn kvæntust konum), Jón Ólafsson Indíafara, Jón Halldórsson í Hítardal og séra Jón Steingrímsson eldklerk.
Af þessu mál ljóst vera að það er alveg eðlilegt að ég hafi gifst Vigdísi, en ég hefði líka getað gengið að eiga hana, fengið hennar, gjört til hennar brúðkaup, átt hana, fengið hana sem ektakonu, eignast hana, fengið eða tekið hana mér til eiginkvinnu, jafnvel ektað eða látið púsa okkur saman.
Höfundar Eglu eða Njálu hefðu hins vegar ekki sætt sig við að ég hefði kvænst Vigdísi. Það hefði þeim þótt kjánalegt þó að þeir hefðu getað samþykkt að ég kvæntist og ætti konu þá sem Vigdís nefndist.