Þetta var skemmtilegur dagur. Fór norður til Akureyrar í morgun og hélt svo beint á Dalvík. Þar heimsóttum við ýmis fyrirtæki, stofnanir og staði. Þó að okkur hafi alls staðar verið tekið vel þá var heimsóknin í Dalbæ, sem er heimili aldraðra, eftirminnilegust. Þar var spilað á píanó þegar við komum og mikið fjör og gleði.
Við Betty höfðum komið þarna í fyrra og minntumst skemmtilegra stunda, en ef eitthvað var voru móttökurnar enn skemmtilegri núna. Á svona stöðum spjöllum við bara um daginn og veginn, rekjum saman ættir og annað smálegt.
Þessi fallega kona á myndinni kallaði á eftir mér þegar ég var að fara, því að hún vildi kveðja mig. Við höfðum hist í fyrra og tekist í hendur þá og hún vildi að við gerðum það líka núna. Svona hlýlegar móttökur hjá góðu fólki verða til þess að maður sofnar glaður að kvöldi.